Fræðsla um reiðina og viðbrögð henni

Leiðbeiningar og markmið:

Ung börn geta orðið reið og orðið hrædd við það að verða reið.

Því er mikilvægt að tala við þau í samræmvið við aldur þeirra og þroska.

Stundum þarf að róa barnið niður, halda utan um það leyfa því að gráta.

Eða leyfa því að vera í friði en vera þó nærri.

Þegar barnið hefur róast er hægt að byrja að tala rólega við það.  

Segja því að þú sjáir að það sé reitt.

Tilgangurinn með þeim verkefnum sem snúa að reiðistjórnun er að þau læri að átta sig á reiðinni þegar hún kemur upp.

Einnig að þau læri að fylgjast með þegar reiðin kviknar og vex þar til barnið finnur að það er alveg að fara að springa. Það er líka hægt að tala við barnið eftir reiðikastið.

Þá er hægt að fara í gegnum hvernig barninu leið og hvernig því líður eftir á þegar það er eins og sprungin blaðra. 

Þá er hægt að benda því á að það geti notað sprengivörnina. (Sjá 10 aðferðir við reiðistjórnun)

Þannig að næst þegar barnið finnur að það er að reiðast og fara að springa að það geti nýtt leiki sprengivarnarinnar.

Með að umvefja barnið á þessum stundum lærir það að  þekkja þessa líðan og skilja að hún er eðlileg. Við verðum stundum reið. En við þurfum að læra að stjórna henni.

Það lærir það með að skilja að reiðin er tilfinning sem barnið getur náð stjórn á  með að þjálfa reiðistjórnun í leik og á skemmtilegan hátt.

Þegar barnið eldist er hægt að ræða enn frekar um reiðina og hvernig við getum náð tökum á henni.

Þetta er áskorun en mikill sigur er unnin, þegar það tekst.

Það besta er að þessi hæfni sjálfstjórnar, fylgir barninu í gegnum lífið.

ATH. Við samþykkjum reiðitilfinninguna en ekki ofbeldi!

Þetta er langferð og við tökum eitt skref í einu.

Hugmynd af samtali útskýringar á æfingunni

Við erum stundum reið þegar einhver eða eitthvað fer öðruvísi en við vonuðumst til. Það er allt í lagi að vera reið(ur). Vissir þú að reiði er aldrei ein og sér það er alltaf undirliggjandi tilfinningar sem valda henni.

Þetta geta verið tilfinningar eins og:

  • Einhver líkamleg vanlíðan eða þreyta
  • Einmanaleiki
  • Hræðsla
  • Áhyggjur
  • Feimni
  • Óöryggi

Finnast þú upplifir þig ekki standa þig nógu vel. Eitthvað fór úrskeiðis — skemmdist eða mistókst. Það getur líka valdið reiði að vera ekki tekinn með eða skilinn útundan eða ekki valinn í hóp. Þetta er allt skiljanlegt en það er hægt að gera ýmislegt annað.
Heimurinn er ekki að farast!

Grunnhugmyndir af samtali við reitt barn

Það fer þó eftir ástandi og aldri barnsins.

Aldur 4 ára og eldri.

Við verðum stundum reið þegar einhver eða eitthvað fer öðruvísi en við vonuðumst til.

Það er allt í lagi að vera reið(ur). En það er erfið tilfinning.

Ertu reið(ur) núna?

Af hverju, getur þú sagt mér það?

Hvar finnur þú fyrir reiðinni þinni í líkamanum?

Það er hægt að gera ýmislegt til að eyða þessari tilfinningu.

Til dæmis eru til leikir og æfingar sem geta hjálpað okkur.

Meira um reiðina.

Reiðitilfinningin er aldrei ein og sér. Það eru alltaf undirliggjandi tilfinningar sem gefa henni kraftinn.

Þetta geta verið tilfinningar eins og:

Vonbrigði

Einhver líkamleg vanlíðan eða þreyta

Einmanaleiki

Hræðsla

Áhyggjur

Feimni

Óöryggi

Þér finnst þú upplifa að þú standir þig ekki nógu vel

Eitthvað fór úrskeiðis — skemmdist eða mistókst

Það getur líka valdið reiði að vera ekki tekinn með eða skilinn út undan eða ekki valinn í hóp.

Skilningur fullorðinna er mikilvægur:

Þetta er allt skiljanlegt en það er hægt að gera ýmislegt annað.

Heimurinn er ekki að farast þó við reiðumst!

Hugmynd að samtali

Veistu þegar þú ert – í  reiðikasti!!!!!
Finnur þú það?
Getur þú útskýrt hvernig þér líður og hvar þú finnur fyrir reiðinni?

ATH. Við samþykkjum reiðitilfinninguna en ekki ofbeldi !

scream, child, girl
Photo by Mandyme27 on Pixabay

Veistu þegar þú ert í  reiðikasti!!!!! getur þú rannsakað hvenær þú ert reið(ur)

MERKI UM VARNARVIÐBRÖGÐ SEM SÝNA AÐ ÞÚ ERT REIÐ(UR)

ÉG er svo brjáluð/brjálaður að ég gæti.:

  • Smassað eitthvað…  Í huganum
  • Ýlfrað eins og varúlfur…….Prófaðu það!
  • Glímt við hákarl…Í huganum
  • Hvað dettur þér sniðugt í hug..?…

Safnaðu saman sniðugum hugmyndum og notaðu þær þegar þú reiðist.

Elísabet Gísladóttir Lýðheilsusetrið Ljósbort