1 Inngangur Hamingjuna þarf að rækta eins og blóm

kids, students, back to school

Fræðsla og markmið:

Hamingjan er mikilvægur og eftirsóttur eiginleiki sem hefur bein áhrif á heilsu, líðan og lífsgæði.

Hamingjusamir einstaklingar eru mun líklegri til að tileinka sér jákvæða eiginleika og njóta lífsins.

Þeir hafa einnig meiri styrk til að mæta og takast á við alls konar erfiðleika og mótlæti í lífinu.

Rannsóknir sýna að hamingjan er mikilvægur eiginleiki sem hefur bein áhrif á heilsu, líðan og lífsgæði. Hamingjusamir einstaklingar eru mun líklegri til að tileinka sér jákvæða eiginleika og njóta lífsins. Þeir eru einnig sterkari að mæta alls konar mótlæti í lífinu.

Hamingjuna þarf að rækta eins og blóm.

Það er hægt að hjálpa barninu að þjálfa hamingjuna á skemmtilegan hátt með leik og æfingum. Þessar æfingar eru bæði fyrirbyggjandi fyrir andlega vanlíðan en einnig eru þær góð viðbót við aðra þjálfun. Einnig geta þær verið stuðningur í annarri meðferð þar sem allar æfingarnar eru settar fram í leik, þannig að barnið er ekki meðvitað um hver tilgangur eða áhrif æfinganna eru. Annað en að hafa gaman.

Með reglulegri meðvitaðri þjálfun á hamingjuhæfni eykur barnið þessa eftirsóttu eiginleika. Með marvissum æfingum styrkist og þykkist heilavefurinn á þann hátt að stuðla að auknum lífsgæðum til framtíðar. (Við þjálfun heilann eins og aðra vefi þegar við gerum æfingar.)

Það er oft talað um að neikvæðar hugsanir límist við okkur eins og franskur rennilás á meðan þær jákvæðu renna burt frá okkur eins og af tefloni. Því er mikilvægt að styrkja meðvitundina um hugsanir sínar og tilfinningar.

Leikirnir/æfingarnar taka á mörgum tilfinninganna sem börn kljást við.

Leikirnir/æfingarnar hafa það markmið að kveikja á gleðinni og viðhalda hæfninni til framtíðar eftir að  tileinkun hefur átt sér stað.

Þetta er eins og að læra að hjóla. Þegar þegar þú ert búinn að læra að hjóla þá rifjast það upp þegar á þarf að halda þó mörg ár líði á milli hjólaæfinga.



Æfingarnar gætu komið á óvart hve einfaldar þær eru en áhrif þeirra geta verið áþreifanleg.

Eins gæti komið á óvart að þegar við tökum á öllum tilfinningum og líðan getur það verið gefandi og gaman. Mikilvægur grunnur að þjálfuninni er samtal fullorðinna, til að barnið skilji hugtökin (eða tilgang verkefnisins sem það er að vinna með) þegar þess þarf og tileinka sér að þjálfa.

Tækin sem við notum er

Samtalið sem skapar hughrif og þjálfar huga og sköpun barnsins. Við virkjum skapandi huga. Við notum föndur og liti til að túlka tilfinningarnar sem barnið er að uppgötva og skilgreina með sjálfu sér. Eitthvað sem gera orð óþörf.

Við notum allt litróf lífsins. Fjölbreyttar líkamlegar-, tilfinningalegar-, huglegar- og andlegar æfingar.

Gagnlegt að vita

Eitt það mikilvægasta í eigin vellíðan og þjálfun hamingjunnar er að gera sér grein fyrir tilfinningum sínum og virða þær og meta. Það sem er enn mikilvægara að læra að stjórna þeim í stað þess að þær stjórni okkur.

Regla númer 1.

Í svona vinnu með börnum  ræðum við á rólegum nótum um allar tilfinningar  og lærum að allar tilfinningar eru í lagi.

Fyrst ræðum við um erfiðar tilfinningar og þær sem barnið er að kljást við þá stundina.

Við endum alltaf á jákvæðum tilfinningum, þannig tökum við þær með okkur inn í daginn eftir að æfingu er lokið.