Leiðbeiningar og markmið:
Pödduberarnir mínir hjálpa mér þegar ég er pirruð/pirraður
Barnið getur upplifað pirring sem því finnst það geta ekki komist út úr eða getur ekki losað sig við.
Stálpaðri börn geta nýtt þessa æfingu bæði til að læra að skilgreina líðan sína og finna henni farveg.
Þetta er gamalt ráð sem hér er sett í myndrænt form.
Hugmynd af samtali útskýringar á æfingunni:
Með því að tala við barnið um hvað sé að pirra það, þannig að það nái að skilja af hverju því líði illa, hjálpar þú því að skilja að það getur gert ýmislegt í að bæta eigin líðan.
Það getur verið eitthvað lítils háttar sem pirrar þau, að okkar mati.
En þau geta upplifa það kannski sem ,,erfiða‘‘ yfirþyrmandi tilfinningu þá stundina.
Þá er einmitt gott tækifæri að prófa þessa tækni.
Það er svo margt sem getur pirrað er t.d. að:
Yngra systkini fiktaði í dótinu eða er alltaf að trufla það í leik.
Vinur eða vinkonan er leiðinleg(ur) og stríðin
Því fannst það ekki ganga vel í; skólanum – íþróttum – í leiknum…
Gott er að gefa sér góðan tíma að tala um það.
Þó svo þetta séu ekki stóru málin í huga okkar fullorðnu þá eru þetta stóru atriðin sem þeirra heimur snýst um á þessum aldri.
Mikilvægt er að:
Tala um það sem barninu finnst pirrandi.
ATH. Innri vanlíðan hjá barni kemur oft út í hegðunarvanda.
Sá vandi á oft rætur í sömu atriðunum.
Algengt er að það séu aðeins fá atriði sem valda þeim vanlíðan og pirringi og því er gott að greina þau sem fyrst.
Hvað er það sem veldur barninu hugarangri?
Við hvað er það hrætt, hverju kvíðir það, yfir hverju er það leitt?
Við þurfum að ná í söguna á bak við vanlíðunina.
Og athuga hvort við getum endurtúlkað hana fyrir barninu eða hvort hægt sé að sjá hlutinn eða atburðinn frá öðru sjónarhorni.
Svo er hægt að nota pödduberana:
Æfing pödduberarnir mínir.
Það sem þarf. Blað og litir.
Teiknaður alls konar pöddur á blað og litaðu.
Pöddur geta verið pirrandi.
Veldu eina t.d.
GRR ég get ekki burðast með það þegar…hann/ hún stríddi mér… þá var ég pirruð/pirraður ég set þennan pirring á þessa pöddu.
Skrifaðu/teiknaðu allt sem getur truflað þig og teiknaðu pöddur og skrifaðu á þær það sem truflar þig og sjáðu þær hverfa í skóginn eða út í náttúruna og þetta truflar þig aldrei aftur.
Því pöddurnar éta öll leiðindin.
Elísabet Gísladóttir Lýðheilsusetrið Ljósbrot