Leiðbeiningar og markmið:
Hér er æfing til að fara í gegnum tilfinningarnar sem eru oft í einum graut.
Við þurfum að finna og skoða tilfinningar sem eru að trufla okkur og hafa áhrif á líðan okkar og hamingju.
Til þess þurfum við að skilgreina hvaða tilfinningar við erum að fást við.
Það getum við gert með hjálp tilfinningateikninganna. (Sjá að horfast í augu við tilfinningar sínar.)
Eða, teikna eða finna myndir af alls konar andlitum sem sýna ólíkar tilfinningar.)
Hugmynd af samtali útskýringar á æfingunni
Það sem þarf:
Tómur kassi, box, eða stórt umslag.
Finndu eða útbúðu, fallegt box eða kassa. Það má líka vera stórt umslag sem þú getur skreytt fallega.
Litir, blöð í öllum litum, myndir sem þú hefur klippt út, myndir sem þú hefur tekið…ath. punktarnir eru aldrei fleiri en þrír
Allt sem þér dettur í hug að setja í kassann sem þú telur að geti hjálpa þér í þessum leik.
Gott að hafa einhvern með sér sem getur hjálpað.
Rifjaðu upp gagnlegar tilfinningar.
Teiknaðu myndir og/eða skrifaðu tilfinninar á fallegt blað sem þú getur skreytt.
Settu í fallegt box/kassa/umslag.
Geymdu á góðum stað.
Þegar þú ert leið(ur) getur þú kíkt í kassann/boxið/umslagið og séð allar góðu tilfinningarnar sem þú hefur safnað og skreytt.
Hugsaðu hvar góðu tilfinningarnar eru í líkamanum?
Hvar þú finnur fyrir þeim?
Rifjaðu líka upp hvenær þú fannst fyrir þessum góðu tilfinningum.
Hvar varstu?
Með hverjum varstu?
Hvað varstu að gera?
- Hugmyndir af gagnlegum tilfinningum
- Gleði = ( sem ég fann þegar ég fór í ísbíltúr með afa og ömmu.)
- Hamingja= ( að kúra með pabba og mömmu)
- Ást = (Kósý stund með þeim sem þér þykir vænt um.)
- Umhyggja = (Gefa einhverjum eitthvað eða gera eitthvað fyrir hann/hana.
- T.d. sjá um að gefa dýrunum sínum að borða, þrífa þau, viðra þau…)
- Kærleikur = (Knúsa þá sem þér þykir vænt um eða senda þeim kærleiks tilfinningu.)
- Öryggi = (Heima.)
- Góðmennska = (Passa yngri systkini mín. Gera góðverk.)
- Vinatengsl = (Góður vinur vekur gleði.)
- Fjölskyldutengsl = (Heimsókn til afa og ömmu eða einhverra í fjölskyldunni.)
Finndu þínar tengingar við góðar minningar og skrifaðu þær niður og geymdu.
Elísabet Gísladóttir Lýðheilsusetrið Ljósbrot