Leiðbeiningar og markmið:
Markmið þessa leiks er að upphugsa drauminn sinn og finna sterku eiginleikana sína.
Hægt er að gera þetta einn eða með hjálp fullorðinna eða vina.
Ef þetta er gert með vini þá er hægt að hjálpast að að finna súper krafta hvors annars.
Það er hægt að tala um styrkleika, leika þá, skrifa niður eða teikna.
Allir hafa einhverja styrkleika eða hæfileika.
Það er hægt byrja með nokkra styrkleika sem má efla og styrkja enn frekar.
Bæta við nýjum eða æfa aðra sem þér langar til að hafa sem þinn styrkleika/ hæfileika.
Alla hæfni þarf að æfa.
Hvort sem það er að vera vinur, góður í fótbolta, á skautum, lesa, skrifa, reikna…
Suma styrkleika getum æft og hjálpa okkur að verða góðir félagar og vinir/vinkonur.
Hugmynd af samtali
Hefur þú velt fyrir þér:
Hverjir eru þínir súperkraftar?
Súperkraftar geta falist í að:
Skilja engan út undan – sussa á hrekkjusvín
Hjálpa litlum krökkum – vera kurteis
Þekkja dýr vera góð(ur) við dýr.
Hjálpa til heima
Vera skemmtilegur vinur/vinkona –
Leika saman – æfa íþróttir, dans, söng…
Vera góð(ur) í að spyrja eftir nýjum vinum og allt sem þér dettur í hug að vera súpervinur /vinkona og félagi.
Vera dugleg(ur) í skólanum.
Minntu þig á að þú ert vinur/vinkona af því það felst í þeirri súperhetju sem þú getur þjálfað upp.
Hvað langar þig að vera góð(ur) eða betri í?
Talaðu um það, skrifaðu það niður, teiknaðu það eða leiktu það sjáðu það fyrir þér eins og það sé orðið.
Mundu:
Hugsaðu alltaf: Er það gott fyrir mig og aðra í kringum mig?
Elísabet Gísladóttir Lýðheilsusetrið Ljósbrot